Húsvíska hljómsveitin Greifarnir fagnar 40 ára afmæli í ár og af því tilefni leggja þeir upp í tónleikaferð um landið undir yfirskriftinni Síðasta sveitaballið.
Fyrstu tónleikarnir voru haldnir í Freyvangi í Eyjafjarðarsveit og í framhaldinu stigu Greifarnir á svið í Skúlagarði í Öxarfirði. Næstu tónleikar verða haldnir 16. júní í Hlégarði í Mosfellsbæ, 19. júní á Lýsuhóli á Snæfellsnesi, 26. júní í Borg í Grímsnesi, 27. júní í Miðgarði í Varmahlíð og síðasta Síðasta sveitaballið verður haldið 15. ágúst í Aratungu í Reykholti.
Á dagskránni eru öll þekktustu lög Greifanna og fleiri gamlir og góðir sveitaslagarar.
Hér er hægt að kaupa miða á Síðasta sveitaballið.
Greifarnir flytja lagið Útihátíð í tónlistarþættinum Rokkarnir geta ekki þagnað árið 1986.










