Öll eru velkomin á Tækninámsdag HA föstudaginn 15. maí á milli klukkan 12 og 15 í Miðborg Háskólans á Akureyri. Þar munu stúdentar í tæknifræði og tölvunarfræði kynna fjölbreytt verkefni sem þeir hafa unnið að í náminu. Einnig mun Helgi Hrafn Halldórsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Maven vera með erindið „Úr tölvunarfræði við HA í stofnun fyrirtækisins Maven“ klukkan 12:30 í stofu M102.
Mikilvægi náms í nærumhverfi
Á Tækninámsdeginum verða stúdentar með bása og plaköt þar sem gestum gefst kostur á að kynna sér verkefnin, spyrja spurninga og ræða við stúdenta um námið og reynslu þeirra. Meðal verkefna sem verða til sýnis eru lausnir tengdar glatvarma til sundlaugarkyndingar, róbótum, vefsíðugerð, sólarorku á þaki HA, iðntölvum og sjálfvirkni, vefforritun, framenda- og bakendalausnum og starfsnámi.
Námið er í boði við HA í samstarfi við HR og sameinar öflugt námsefni HR við sterkt námssamfélag og stuðning á staðnum við Háskólann á Akureyri.
Mikilvægi náms í nærumhverfi hefur einnig komið skýrt fram í aukinni þátttöku liða frá Norður- og Austurlandi í Forritunarkeppni framhaldsskólanna og nú síðast var metþátttaka af svæðinu í keppninni.
Snjöll mælaborð, viðskiptagreind og lífið
Helgi Hrafn Halldórsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Maven, mun í erindi sínu segja frá sinni reynslu af því að stofna fyrirtæki í hugbúnaðargeiranum á Íslandi.
Helgi Hrafn er HA-ingur sem brautskráðist úr tölvunarfræði árið 2006 og starfaði sem forritari til átta ára. Hann sá tækifæri í viðskiptagreind, gervigreind og þróun snjallra mælaborða og ákvað í framhaldi að stofna Maven. Í apríl síðastliðnum var Maven selt til Origo. Hann mun lýsa þessari vegferð og útskýra hvernig tölvunarfræðin við HA studdi við hana.
Öll eru velkomin og frekari upplýsingar um Tækninámsdaginn og erindi Helga Hrafns má finna á viðburðadagatali HA á unak.is.










