Sundlaug Akureyrar verður lokuð frá mánudeginum 18. maí til 22. maí vegna viðhalds. Á lokunartímanum verður unnið að fjölbreyttum viðhaldsverkefnum. Þar má meðal annars nefna endurnýjun botnlína í keppnislauginni, yfirferð og viðgerðir á fúgum í öllum kerjum, yfirferð á rennibrautum og endurnýjun gúmmíkurls í vaðlaug. Einnig verður unnið að fúguviðgerðum á gólfum innandyra og málningarvinnu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.
„Gert er ráð fyrir að sundlaugin verði lokuð alla fimm dagana, en takist að ljúka framkvæmdum fyrr verður laugin opnuð um leið og það verður mögulegt. Gestir eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda,“ segir í tilkynningunni.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?





