Nú styttist óðfluga í stóru helgina þegar Pollamót Þórs fer fram. Skráning er nú komin á fullt fyrir mótið. Ekkert liðsgjald er í ár, einungis eitt verð per leikmann.
„Við erum spennt að taka á móti ykkur og hjálpa til við að búa til minningar sem lifa að eilífu. Frábær dagskrá verður báða dagana í Hamri þar sem Aron Can heldur uppi fjörinu á pallinum við Hamar á föstudagskvöldið en mótinu lýkur með glæsilegu balli í Boganum á laugardagskvöld þar sem Skítamórall leikur fyrir dansi,“ segir í tilkynningu Þórs.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Fótboltaveislan hefst með leik Þórs og KR í Bestu deildinni á fimmtudeginum.










