Verjendur fimm sakborninga í hoppukastalamálinu fóru fram á að málinu yrði vísað frá dómi í dag. Ákæra var gefin út í byrjun árs 2023 og hafa allir sakborningar neitað sök. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Málið tengist slysi sem varð á Akureyri 1. júlí árið 2021 þegar hoppukastalinn Skrímslið tókst skyndilega á loft með þeim afleiðingum að sjö börn voru flutt á slysadeild, þar af fjögur alvarlega slösuð.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Verjendur sakborninganna byggja frávísunarkröfuna meðal annars á því að rannsókn lögreglu hafi verið ófullnægjandi og að ákæran sé óskýr.
Samkvæmt RÚV mun dómari taka ákvörðun á næstu dögum eða vikum um hvort málinu verði vísað frá dómi eða tekið til aðalmeðferðar.
Nánar má lesa um málið á vef RÚV með því að smella hér.









