Sigríður Huld Jónsdóttir ráðin sviðsstjóri Náms- og kennsluþjónustusviðs

Sigríður Huld Jónsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri Náms- og kennsluþjónustusviðs í Háskólanum á Akureyri. Sigríður Huld var aðstoðarskólameistara VMA frá árinu 2006 og var síðan skólameistari árið 2016. Því starfi sinnti hún til 1. ágúst 2025 og tók þá við stöðu verkefnastjóra hjá Háskólanum á Hólum og Háskóla Íslands þar sem hún hefur unnið að innleiðingu og undirbúningi að stofnun háskólasamstæðu skólanna.

„Ég er afar stolt af því að hefja störf við Háskólann á Akureyri sem sviðsstjóri Náms- og kennsluþjónustusviðs, ekki síst sem fyrrverandi stúdent við skólann. Háskólar gegna sífellt mikilvægara hlutverki í að leiða breytingar framtíðarinnar með öflugri menntun, gagnrýnni hugsun, samfélagslegri ábyrgð og nýsköpun. Það er mér því mikilvægt að fá tækifæri til að leggja mitt af mörkum til þróunar kennslu og námsumhverfis á tímum hraðra breytinga. Ég hlakka til að vinna með stúdentum og starfsfólki að áframhaldandi uppbyggingu Háskólans á Akureyri,“ segir Sigríður Huld á vef háskólans.

Samhliða störfum sínum hefur Sigríður Huld verið virk í samfélagslegum verkefnum meðal annars sem bæjarfulltrúi á Akureyri, setið í stjórn Skólameistarafélags Íslands, SÍMEY og Iðnmenntar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!