Heilsuvernd Hjúkrunarheimili starfar á tveimur stöðum, Hlíð, Austurbyggð 17, Lögmannshlíð, Vestursíðu 9 og í dag fengu íbúar Lögmannshlíðar heimsókn þegar Elín Birna starfsmaður kom með hestana Baug og Hörpu í Bandagerðisgarðinn.
„Íbúarnir nutu samverustundarinna í góða veðrinu, klöppuðu hestunum og gáfu þeim brauð. Gleðin skein úr hverju andliti og margir rifjuðu upp gamlar minningar tengdar hestamennsku. Þeir Guðmundur, Jósep og Siggi létu ekki sitt eftir liggja og skelltu sér á hestbak. Það var greinilegt að þeir höfðu engu gleymt og sátu hestana af öryggi og ánægju. Heimsóknin vakti mikla lukku meðal íbúanna og skapaði notalega stund sem verður lengi í minnum höfð,“ segir í færslu á Facebook Heilsuvernd Hjúkrunarheimili.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?










