Ljósmynd: Lögreglan á Norðurlandi eystra

Neyðaræfing á Akureyrarflugvelli

Íbúar og vegfarendur á Akureyri mega búast við miklum umsvifum viðbragðsaðila í dag þegar umfangsmikil neyðaræfing fer fram á Akureyrarflugvelli. Æfingin hefst klukkan 14:00 og stendur til um 17:00. Æfð verða viðbrögð við brotlendingu flugvélar með stórum hópi slasaðra. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Lögreglunnar á Norðurlandi esytra.

Vegna þessa má reikna með talsverðri umferð lögreglu, slökkviliðs, sjúkrabíla og björgunarsveita um bæinn og þá sérstaklega í nágrenni flugvallarins. Jafnframt er vakin athygli á því að eldur og reykur gæti verið sýnilegur frá flugvallarsvæðinu en lögreglan á Norðurlandi eystra undirstrikar að það sé liður í sviðsetningunni og í æfingaskyni.

Góður undirbúningur hefur átt sér stað en í gær var haldin skrifborðsæfing þar sem farið var yfir verklag og stjórnun, sem tókst að sögn lögreglu afskaplega vel. Allir viðbragðsaðilar, þar á meðal Rauði krossinn, eru því tilbúnir fyrir átök dagsins. Fólk er beðið um að sýna aðgát en láta sér ekki bregða þótt mikið gangi á í tengslum við æfinguna síðdegis.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!