Á hverju ári blæs Íslandsdeild Amnesty International til herferðarinnar Þitt nafn bjargar lífi, sem er alþjóðleg mannréttindaherferð við að safna undirskriftum til stuðnings einstaklinga eða hópa sem þolað hafa mannréttindabrot. Fastur liður í herferðinni er framhaldsskólakeppni í undirskriftasöfnun, þar sem ungt fólk er hvatt til að beita sér í þágu mannréttinda.
Framhaldsskólinn á Laugum varð Mannréttindaskóli ársins þriðja árið í röð með því að vera með hlutfallslega flestar undirskriftir miðað við nemendafjölda í framhaldsskólakeppninni fyrir Þitt nafn bjargar lífi árið 2025.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
„Við erum afar stolt af okkar nemendum sem svo sannarlega leggja sitt af mörkum i þessari mikilvægu baráttu,“ segir á vef skólans.







