Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Fjallabyggð liggja nú fyrir, en lokatölur bárust á fjórða tímanum í nótt.
D-listi Sjálfstæðisflokksins hlaut 35,7% atkvæða og nær því inn 3 fulltrúum í sveitarstjórn.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
H-listinn hlaut 33,5% atkvæða og tvo fulltrúa.
S-listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar og óháðra hlaut 30,8% atkvæða og fær því líka tvo fulltrúa.
Á kjörskrá voru 1.555 manns og kjörsókn var 77,3%
Kjörnir fulltrúar
Tómas Atli Einarsson (D)
Helgi Jóhannsson (H)
Jóhann K. Jóhannsson (S)
Kristín Ágústa Eiðsdóttir (D)
Kristinn Kristjánsson (H)
Pálmi Blængsson (S)
Guðrún Sif Guðbrandsdóttir (D)










