Sjúkrahúsið á Akureyri, SAk, hefur nú hætt notkun íbúða á Kristnesi þar sem sjúkrahúsið hefur verið með níu hús með um tuttugu íbúðum í leigu. Níu íbúðir standa nú auðar. SAk lét meta húsnæðið m.t.t. rakaskemmda og gruns um vöxt myglusveppa, auk þess sem ástand vatnsveitu og fráveitu var metið. Niðurstaða matsins var sú að ráðast þurfi í talsverðar framkvæmdir til þess að húsnæðið teljist heilnæmt.
Í fréttatilkynningu SAk segir að ekki sé fyrir hendi fjármagn til þess að fara í stórfelldar endurbætur á umræddum eignum og að ekki standi til að SAk leigi út íbúðirnar í framtíðinni. SAk mun vera í samskiptum við heilbrigðisráðuneytið um framtíð húsnæðisins. Fulltrúar SAk hafa fundað með leigutökum og kynnt þeim þessa stöðu.
„Okkur þykir ákaflega leitt að þetta sé staðan og erum vel meðvituð um hversu mikil áhrif þetta getur haft á leigjendur, enda er um að ræða heimili fólks. Við sjáum hins vegar engan annan raunhæfan kost í stöðunni,“ segir Erla Björnsdóttir, settur forstjóri SAk, í tilkynningunni.









