Efling klínískrar lyfjafræði á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk), LSH, HÍ og HA ásamt Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu fengu á dögunum úthlutað styrk úr samstarfssjóði háskólanna fyrir verkefnið Efling klínískrar lyfjafræði á Akureyri. Þetta kemur fram á vef SAk í dag.

Verkefnið snýr að uppbyggingu á hlut af sérnámi í klínískri lyfjafræði við Sjúkrahúsið á Akureyri. Þróun námsins er talin brýn til að fjölga klínískum lyfjafræðingum til að mæta þörfum heilbrigðiskerfisins og bæta aðgengi að menntun á landsbyggðinni. Í stóra samhenginu er markmiðið því að bæta gæði, öryggi og hagkvæmni í lyfjamálum sjúklinga.

„Þar sem SAk er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins er það sérstaklega mikilvægt að sjúkrahúsið fái tækifæri til þess að byggja upp klíníska lyfjaþjónustu og taka þátt í að þjálfa og mennta klíníska lyfjafræðinga. Með þessari þróun gerum við okkur vonir um að fleiri klínískir lyfjafræðingar muni starfa utan höfuðborgarsvæðisins í kjölfarið,“ segir Jóna Valdís Ólafsdóttir, deildarstjóri lyfjaþjónustu SAk.

„Samstarfssjóður háskólanna er mikil hvatning til samstarfs háskólanna og í því felast mikil tækifæri eins og þessi umsókn sýndi. Samstarfið felst í að byggja upp menntun og þjálfun samhliða því að veita klíníska lyfjafræðiþjónustu á SAk og HSN á seinni stigum með þá framtíðarsýn að bæta heilbrigðisþjónustu og aðgengi að menntun utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir í tilkynningu SAk.

Verkefnið mun auka námsframboð og möguleika til framhaldsnáms á háskólastigi utan höfuðborgarsvæðisins með því að útvíkka sérnám í klínískri lyfjafræði við HÍ með samstarfi HÍ og HA.

„Nú munum við leggjast aftur yfir verkefnið og skipuleggja næstu skref,“ segir Jóna Valdís að lokum.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!