Leikkonan Vigdís Halla var tilnefnd til Grímuverðlauna sem leikkona ársins í aukahlutverki. Tilnefninguna hlýtur hún fyrir hlutverk sitt í Elskan er ég heima? Leikfélag Akureyrar tilkynnti einnig að Vigdís muni halda starfi sínu áfram hjá félaginu á sviði Samkomuhússins á næsta leikári.
Gríman verður afhent í Þjóðleikhúsinu 26. maí og sýnd beint á RÚV.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?









