Ari Baldursson og Hermenn hugans á Græna hattinum 

Tónlistarmaðurinn Ari Baldursson (Ari Bald) stígur á svið ásamt hljómsveit sinni, Hermönnum hugans, á Græna hattinum þann 4. júní næstkomandi. Á tónleikunum verður frumsamin tónlist Ara í fyrirrúmi, en hann hefur verið afar iðinn við útgáfu á síðustu misserum. Til að kóróna kvöldið kemur nýjasta lagið hans, „Sveitaball ’77“, formlega út á öllum streymisveitum á sjálfan tónleikadaginn.

Hringnum lokað á Græna hattinum

Ari Baldursson var áberandi í ballbransanum á Akureyri á níunda áratugnum með hljómsveitum eins og París og Helenu fögru, og var síðar helmingur dúettsins Jóns forseta. Jón forseti lék nokkrum sinnum fyrir dansi á „Pollinum“ fyrir Hauk Tryggvason á sínum tíma, en Haukur rekur Græna hattinn svo þeir eru ekki ókunnugir. Ari er yfirleitt með svartan kúrekahatt þegar hann kemur fram og verður því ekta stemning þegar svarti hatturinn mætir loksins á þann Græna. 

Nýtt lag og ríkuleg útgáfusaga

Lagið „Sveitaball ’77“ fangar stemninguna á böllum áttunda áratugarins, en útgáfan er liður í stærra ferli þar sem Ari stefnir á útgáfu nýs geisladisks á næsta ári. Hann á að baki dýrmæta reynslu sem lagahöfundur; hann gaf út plötuna Helst af öllu árið 2006 þar sem öll tíu lögin voru eftir hann sjálfan, og árið 2024 fylgdi hann því eftir með plötunni Gull og grænir skógar.

25 ára útgáfuafmæli

Á efnisskránni verður úrval laga af ferlinum, þar á meðal af plötu dúettsins Jóns forseta, en hún á einmitt 25 ára útgáfuafmæli á þessu ári. Það er því vel við hæfi að fagna þeim tímamótum á Græna hattinum með þéttri hljómsveit.

„Meginmarkmiðið er að flytja eigin lög í lifandi umhverfi og leyfa þeim að njóta sín með fólkinu. Nýja lagið er þegar farið að vekja athygli en ég gerði það aðgengilegt á Facebook-síðu minni nýverið til að hita upp fyrir tónleikana. Að það komi svo formlega á streymisveiturnar á tónleikadaginn eykur bara á eftirvæntinguna,“ segir Ari.

Sveitaball ´77 á Facebook: https://www.facebook.com/reel/1020162597348435

Hljómsveitina skipa:

  • Ari Baldursson – Söngur og gítar
  • Hallgrímur Jónas Ómarsson – Gítar
  • Ingólfur Jóhannsson – Hljómborð
  • Gísli Örn Guðmundsson – Bassi
  • Bjarni Arason – Trommur
  • Árni F. Sigurðsson – Hljóðmaður

Upplýsingar:

  • Hvar: Græna hattinum, Akureyri
  • Hvenær: 4. júní
  • Miðasala: graenihatturinn.is

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!