Nú í maí hafa Alexander Smári Kristjánsson Edelstein píanóleikari og Erla Dóra Vogler mezzosópran haldið saman þrenna aðeins öðruvísi ljóðatónleika. Tónleikarnir voru haldnir í Ljósavatnskirkju, skólahúsinu á Kópaskeri í samstarfi við Flygilvini og í gamla skólanum á Bakkafirði í samstarfi við FarNorth Iceland. Einir tónleikar eru eftir, en þeir verða haldnir í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík 28. maí kl. 20:00.
Alexander og Erla Dóra eru bæði af þýsk-íslenskum ættum og á tónleikunum flytja þau blöndu þýskra og íslenskra söngljóða. Tónleikarnir eru klassískir, en einnig óklassískir að því leiti að talað mál skipar óvenju veigamikinn sess á tónleikunum, þar sem tónlistarmennirnir kryfja hvað það er við lögin sem heillar þau persónulega og deila því með áheyrendum – auk þess að flytja þau. Hvert söngljóðanna var valið inn á efnisskrána af einhverri ástæðu, það getur verið formið, eða ákveðinn hljómur, orð eða setning, laglína, eitthvað sem tengist atburði í þeirra lífi… það getur verið algjörlega allskonar!
„Tónleikarnir hafa gengið vel og tónleikagestir hingað til látið mjög vel að þessu óhefðbundna tónleikaformi. Margir hafa sagst njóta flutningsins betur eftir að hafa fengið smá innsýn í hvert verk og þær tilfinningar sem flytjendur bera til þess“, segir Erla Dóra. „Móttökurnar á öllum stöðunum hafa líka verið alveg yndislegar, með nýstilltum flyglum og svo mikilli jákvæðni og þakklæti. Það er alveg frábært að hafa fengið styrki, bæði frá Uppbyggingarsjóði SSNE og menningar- og viðurkenningarsjóði KEA, til að geta farið með tónleikana á fámennari staði, þar sem innkoma ein og sér myndi aldrei bera svoleiðis verkefni“.

„Svo er líka svo mikið ríkidæmi fólgið í þessum verkefnum og félagasamtökum sem eru að styðja við menningarviðburði á þessum stöðum, eins og Flygilvinir – sem eru félag áhugafólks um eflingu tónlistarlífs í Öxarfjarðarhéraði, og FarNorth – sem er nýtt framtaksverkefni á sviði þjónustu og menningar með aðsetur á Bakkafirði“, segir Erla Dóra. En FarNorth er nýtt verkefni sem snýst um að blása lífi í nokkur hús í þorpinu með rekstri gistingar, kaffihúss og annarrar þjónustu, auk þess að hýsa menningarviðburði o.fl. jafnt fyrir heimafólk og gesti. Hugmyndin að baki FarNorth er að skapa hlýlega og skapandi samkomustaði sem tengjast nærsamfélaginu, náttúru svæðisins og menningu þess.
„Nú eigum við bara eftir tónleikana í Bergi og hlökkum mikið til að flytja dagskrána einu sinni enn. Svo skilst okkur að veitingahúsið Hóllinn ætli að bjóða upp á kaffi og með því, þannig að gestir ættu geta notið veitinga meðan á tónleikunum stendur“, segir Erla og bætir við að það sé einmitt svona afslappað andrúmsloft sem þau vilji ná fram, þar sem ekki er múr milli flytjenda og áheyrenda.










