Mynd: KA.is

Alex á EM í Tékklandi

Alex Cambray Orrason úr KA keppti um helgina í EM í kraftlyftingum með búnaði í Pilsen í Tékklandi. Alex náði flottum árangri en hann keppti í sterkum -93kg flokki. Fjallað er um árangur hans á vef KA í dag:

Hnébeygjan var fyrst og þar gekk á ýmsu. Alex byrjaði á að setja 335kg á stöngina en lyftan var dæmd ógild vegna dýptar. Hann hækkaði samt sem áður þyngdina, fullviss um að klára næstu lyftu, sem hann og gerði, 345kg fóru örugglega upp.

Í bekkpressu byrjaði Alex á 225kg. Aftur gekk á ýmsu. Opnunarlyftan fór örugglega upp, 220kg fóru upp en var ekki dæmd lögleg og eftir að hafa bætt enn í og sett 225kg á stöngina var Alex hársbreidd frá því að ná löglegri lyftu en allt kom fyrir ekki. Niðurstaðan 215kg í bekknum.

Að lokum var það réttstaða, 250kg var opnunarþyngdin hjá Alex sem flaug upp og sama með 265kg. Lokaþyngdin var 272,5kg en sú þyngd fór ekki löglega upp og niðurstaðan því 825kg samanlagt hjá Alex.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!