Eftir tæplega fjögra ára rekstur segja Bessi og Bor skilið við fyrirtækið Fincafresh. Fyrirtækið byrjaði sem samfélagsverkefni þar sem þeir vildu bjóða nágrönnum og nærsveitungum upp á ferska árstíðabundna ávexti. Verkefnið hefur heldur betur undið upp á sig og eru nú hundruðrir viðskiptavina víðsvegar um landið.
„Við erum stoltir af því sem við afrekuðum og bjuggum til. Fincafresh er fallegt samfélag einstaklinga og fyrirtækja sem vilja aðeins það besta. Á tímamótum sem þessum lítum við glaðir um öxl. Þetta hefur verið í senn krefjandi en einstaklega skemmtilegur – og sérstaklega bragðgóður – tími! En allt tekur senn enda, og okkur hlakkar til að vera nýjum eigendum innan handar næstu vikur og mánuði,“ segja Bessi og Bor á Facebooksíðu Fincafresh.
Hjónin Elís Orri og Sigrún hafa tekið við keflinu frá og með síðustu mánaðamótum. Áfram verður verslað við sömu smábændur og reksturinn breytist því ekki þó svo reynt verði að bæta upplifun viðskiptavina og fjölga öðrum spennandi valkostum til viðbótar við ávextina.





