Fjallakonungurinn í Hlíðarfjalli

Sunnudaginn 24.maí kl 18:00 halda félagarnir í Team23 svokallað Hillcross eða brekkukross í hlíðarfjalli. Keppendur keyra braut sem inniheldur stökkpalla og beygjur. Brautin er frá endanum á Hjallabrautar lyftunni og upp með fram strýtuskálanum og síðan upp Norðurbakkann þar sem endamarkið verður.

Lyftan er opin frá kl 17-22 og kostar litlar 3000kr, lyftumiði og aðgangur að áhorfendapöllunum. Áhorfendur eru hvattir til að mæta sem fyrst og koma sér fyrir, veitingasala og barinn verður opin í strýtuskálanum , DJ verður á pallinum og óvæntur gestur mætir á staðinn eftir verðlaunaafhendingu og heldur uppi stemmingu með DJ Ayobe.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!