Ásta Fönn Flosadóttir aðstoðarskólameistari VMA veitti styrknum viðtöku úr hendi Huldu Sædísar Bryngeirsdóttur, formanns verkefna-, þjónustu- og jafnréttisnefndar Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu. Mynd: VMA.is

Zontaklúbburinn Þórunn hyrna styrkir nemendasjóð VMA

Zontaklúbbur Þórunnar hyrnu styrkti á dögunum nemendasjóð VMA um 500 þúsund krónur. Þeirri fjárupphæð verður varið til að styrkja efnaminni stúlkur/konur til kaupa á námsgögnum á skólaárinu 2026/2027. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef VMA.

Þetta er þriðja árið sem Zontaklúbburinn Þórunn hyrna styrkir nemendasjóð VMA. Fyrri ár hefur styrkupphæðunum verið varið til kaupa á tölvum fyrir efnaminni stúlkur/konur. Á komandi skólaári verður, sem fyrr segir, fjármununum varið til kaupa á námsgögnum.

Zontaklúbburinn Þórunn hyrna er hluti af alþjóðahreyfingu Zontakvenna. Tilgangurinn með starfi Zonta er að styðja við konur og stúlkur og vinna að jafnrétti. Þórunn hyrna kemur að slíkum verkefnum hér á landi, m.a. þessu verkefni í VMA, og alþjóðlegum verkefnum.

„Verkmenntaskólinn á Akureyri þakkar Zontakonum fyrir einstakan hlýhug og mikilvægan stuðning við nemendur í VMA,“ segir í tilkynningu VMA.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!