Útskrift úr leiðsögunámi SMHA, Símenntun Háskólans á Akureyri, fór fram við hátíðlega athöfn á Strikinu síðastliðinn föstudag. Alls útskrifuðust 13 nemendur úr náminu. Útskriftarnemendur 2026 eru Anna Berg Samúlesdóttir, Anna-Catharina Varga, Ekaterina Marnitcyna, Elías Bj. Gíslason, Eva Hjörtína Ólafsdóttir, Halldór Gunnar Hálfdansson, Henriette Hintze, Ingunn Helga Bjarnadóttir, Regina Gentner, Rita Tallárom, Rúnar Freyr Júlíusson, Sólrún María Arnardóttir og Vigdís Klara Aradóttir. Fjallað er um útskriftina á vef SMHA.
Leiðsögunámið hjá SMHA er metnaðarfullt faglegt nám sem byggir á skýrum gæðaviðmiðum og hefur á undanförnum árum verið þróað markvisst í takt við kröfur ferðaþjónustunnar. Námið uppfyllir evrópskan staðal um menntun leiðsögumanna og tryggir þannig að útskrifaðir nemendur búi yfir þeirri þekkingu, færni og hæfni sem krafist er í alþjóðlegu samhengi.
Við útskriftina var sérstaklega horft til þeirrar þrautseigju og fagmennsku sem nemendur hafa sýnt í gegnum námið. Að ljúka þriggja anna námi með vettvangsferðum og verklegri þjálfun samhliða vinnu og öðrum skuldbindingum er verulegur árangur og bera útskriftarnemar með sér sterkan faglegan grunn inn í atvinnulífið.
Starf leiðsögumanns er bæði skemmtilegt og gefandi en jafnframt krefjandi og ábyrgðarmikið. Það kallar á víðtæka þekkingu á náttúru, sögu og samfélagi, framúrskarandi samskiptahæfni og getu til að takast á við ófyrirséðar aðstæður. Í náminu er lögð rík áhersla á að undirbúa nemendur fyrir þetta hlutverk með blöndu af fræðilegri kennslu, vettvangsnámi og staðlotum þar sem raunverulegar aðstæður eru æfðar.
Margrét Kristín Jónsdóttir verkefnastjóri námsins og kennari sagði í ræðu sinni að tímamót hefðu orðið haustið 2025 þegar allt leiðsögunám á Íslandi fór í gegnum úttekt BSI, að frumkvæði Deildar leiðsögufólks innan VR, til að meta hvort námið uppfyllti evrópskan gæðastaðal. Niðurstaðan var sú að leiðsögunám SMHA hlaut vottun snemma árs 2026. Útskriftarhópurinn nú er sá fyrsti sem lýkur námi eftir þessa vottun og af því tilefni fengu nemendur svokallaðan skjöld eða Gullmerkið að gjöf frá VR afhentan með prófskírteinum sínum.
Í ræðu sinni lagði Stefán forstöðumaður Símenntunar HA, áherslu á gæði námsins og tilgang þeirra krafna sem gerðar eru til nemenda. Stefán veitti SBA Norðurleið þakklætisvott fyrir aðkomu sína að náminu en SBA styrkir námið rausnarlega með aðgangi að rútum fyrir allar vettvangsferðirnar sem og gefur nemendum tækifæri til þess að spreyta sig í starfi leiðsögumanns á meðan á námi stendur.:
„Þið hafið lagt mikið á ykkur til að komast hingað í dag. Og það skiptir máli að þið vitið að krafan sem gerð var til ykkar var ekki til að gera ykkur lífið erfitt — heldur til að tryggja að þið séuð í stakk búin til að standa ykkur vel.
Það er eitthvað sem við hjá Símenntun erum stolt af. Við trúum því að gæði skipti máli. Að fagmennska skipti máli. Og að fólk finni muninn þegar það fær leiðsögumann sem kann sitt fag.“
Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu Norðurlands ávarpaði einnig samkomuna og lagði áherslu á mikilvægi námsins fyrir uppbyggingu ferðaþjónustunnar á Norðurlandi og á landinu öllu.
Nú er hafin skráning í námið sem hefst í janúar 2027 en skráningarfrestur er til 15. september 2026. Hámarksfjöldi er í námið og áhugasöm því hvött til að sækja um sem fyrst.










