Hátíðarhöld á þjóðhátíðardeginum fara fram í Lystigarðinum á Akureyri og á MA-túninu líkt og undanfarin ár. Á svæðinu verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna og skátarnir halda meðal annars uppi fjörinu á túninu með alls kyns skemmtun og leiktækjum.
Nú er leitað eftir matarvögnum til að skapa líflega og fjölbreytta matarupplifun fyrir gesti.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Þátttaka matarvagna er án endurgjalds og aðgengi að rafmagni verður á svæðinu.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband með því að senda tölvupóst á info@visitakureyri.is.










