Akureyrarvaka, afmælishátíð Akureyrarbæjar verður haldin helgina 28.-29. ágúst. Nú hefur verið opnað fyrir styrki vegna viðburða á hátíðinni. Góðum hugmyndum verður veittur stuðningur að hámarki 300.000 kr. Umsóknarfrestur er til og með 29. júní næstkomandi. Sótt er um í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar.
Í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag segir að stefnt sé að því að halda enn skemmtilegri og fjölbreyttari Akureyrarvöku í ár. Rökkurró í Lystigarðinum verður á sínum stað á föstudagskvöldið og á laugardeginum verður hlaðborð af fjölbreyttum viðburðum. Sú nýjung verður á að laugardagskvöldinu verður breytt í lifandi og fjölbreytta upplifun um allan miðbæinn, þar sem tónlist, listir og uppákomur spretta fram á mörgum stöðum í stað einna stórtónleika eins og áður.
„Biðlað er til listafólks, fyrirtækja, félaga og bæjarbúa sem vilja leggja sitt af mörkum og skapa einstaka stemningu með okkur. Fyrirtæki á svæðinu eru sérstaklega hvött til þess að taka þátt með því að opna dyrnar fyrir tónlist eða listasýningum eða leggja sitt af mörkum með skapandi uppákomum. Hvort sem þú ert með hugmynd, vettvang, tónleika, sýningu eða bara vilja til að taka þátt – þá viljum við heyra frá þér! Ljóðalestur, trúbadorar, leiklist, dans, gjörningar, strengjakvartett, sirkus, matarmenning, myndlist, ópera, smiðjur; saman sköpum við skemmtilega og fjölbreytta Akureyrarvöku 2026 – hátíð á hverju horni,“ segir í tilkynningu bæjarins.










