ALARK arkitektar hlutu fyrstu verðlaun í skipulagssamkeppni um Akureyrarvöll

Vinningstillagan í samkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi í gær. Arkitektastofan ALARK arkitektar hlaut fyrstu verðlaun. Alls bárust 16 tillögur í samkeppnina sem Akureyrarbær efndi til í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Ein tillaga reyndist ógild og fjallaði dómnefnd því um 15 gildar tillögur.

Vinningstillagan, Akureyrarvöllur, er að mati dómnefndar heildstæð og sannfærandi tillaga sem skapar eftirsóknarvert miðbæjarsvæði og gott búsetuumhverfi. Tillagan vinnur vel með staðaranda og sögu svæðisins, styrkir tengingar við nærliggjandi hverfi og endurvekur Akureyrarvöll sem lifandi samkomustað.

Hér má sjá tillöguna.

Í dómnefndaráliti segir m.a. um verðlaunatillöguna: Helsti styrkur tillögunnar felst í skýrri heildarsýn og raunhæfri nálgun á þróun svæðisins. Að mati dómnefndar myndast gott samspil milli miðbæjar og norðursvæða þannig að til verður skýr tengipunktur. Sterk landslagshönnun og sögulegar skírskotanir eru bæði aðlaðandi og raunhæfar í rekstri með eðlilegu viðhaldi.

Í öðru sæti var tillaga marimo arkitekta, Brúum hjarta Akureyrar, auðkennd #481839, og í þriðja sæti var tillaga Teikna – Teiknistofu Arkitekta, Vallartorgauðkennd #505020.

Ítarlega umfjöllun um keppnina og allar tillögur má finna á vef Hönnunarmiðstöðvar með því að smella hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!