30 daga skilorð fyrir líkamsárás gegn dóttur sinni

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás gegn dóttur sinni. Dóttirin hlaut heilahristing og áverka á andliti. Hún baðst undan því að gefa skýrslu fyrir dómi. Fjallað er um málið á vef RÚV í dag.

Maðurinn var sakfelldur fyrir að slá dóttur sína utan undir og ýta henni harkalega upp að vegg með þeim afleiðingum að hún hlaut meðal annars heilahristing og áverka á andliti og hálsi. Dóttirin baðst undan því að gefa skýrslu fyrir dómi og það gerðu vitni í málinu, móðir hennar og bróðir, einnig.

Ekki tókst að sanna alvarlegustu atriði ákærunnar, meðal annars að maðurinn hefði tekið dóttur sína hálstaki, dregið hana eftir gólfi eða sparkað í hana. Dómurinn taldi þó viðbrögð hans langt úr hófi en brotaþoli viðurkenndi sjálf að hafa slegið föður sinn fyrst.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn hefði leitað sér sálfræðiaðstoðar, að samskipti þeirra hefðu batnað og að ekki væri um endurtekið ofbeldi að ræða. Til þyngingar var hins vegar horft til þess að brotið beindist að dóttur hans á heimili fjölskyldunnar í viðurvist annarra fjölskyldumeðlima.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!