Opnun útskriftarsýningar VMA í Listasafninu á Akureyri 

Laugardaginn 9. maí klukkan 15:00  opnar útskriftarsýning listnáms- og hönnunarbrautar VMA  í Ketilhúsi, Listasafninu á Akureyri. Sýningin mun standa til 17. maí.

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í náminu á listnáms- og hönnunarbraut Verkmenntaskólans á Akureyri og er þetta tíunda árið sem sýning er haldin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri. 

Samhliða öðru námi til stúdentsprófs fá nemendur eina önn til að vinna lokaverkefni á sínu sérsviði. Nemendur vinna sjálfstætt að því að útfæra eigin hugmyndir í þá miðla sem þau kjósa, allt frá fyrstu kveikju að lokaútfærslu. Þau þróa og móta verk sitt með rannsóknar- og tilraunavinnu og eiga í stöðugu samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og aðra nemendur í sköpunarferlinu. Þau gera grein fyrir þeim ákvörðunum sem eru teknar við þróun verksins og í undirbúningi sýningarinnar með tilliti til faglegrar þekkingar. Þetta er síðasta verkefni nemenda á brautinni áður en þau feta sig út í hinn stóra heim sjónlista.

Nemendur listnáms- og hönnunarbrautar VMA
Útskriftarsýning 
09.05.2026-17.05.2026
Listasafnið á Akureyri – Salir / Galleries 10 11 

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!