Nýr afþreyingarstaður opnar í miðbænum

Í sumar mun afþreyingarstaðurinn Fiesta opna við Ráðhústorg á Akureyri. Eigendur Vamos standa að opnun staðarins en hægt verður að labba á milli staða á neðri hæð. Fiesta verður staður með píluspjöldum, pool-borðum, leikjakössum, shuffleboard og 12 skjáum þar sem íþróttaviðburðir verða meðal annars sýndir. Stefnt er á opnun 1. júní næstkomandi.

Halldór Kristinn Harðarson, einn af eigendum Vamos greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í dag. Hann segir að opnun staðarins sé liður í baráttu hans fyrir því að miðbær Akureyrar skíni og að þar verði aukið mannlíf.

„Þarna erum við að reyna koma meiri afþreyingu niður í miðbæ og vonum við að fólk taki vel í það. Útisvæðið okkar mun svo vonandi iða af lífi í sumar. Við stækkum eldhúsið, stækkum matseðil og það kemur nýr kokteilaseðill. Við ætlum að sýna HM í fótbolta í allt sumar svo þið vitið hvar þið getið horft á það,“ segir Halldór.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!