Húsavík

Lokatölur komnar í Norðurþingi

Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Norðurþingi liggja nú fyrir og lokatölur komnar í hús. Samfylkingin bætir þar við sig fulltrúa en Framsóknarflokkurinn missir einn. Sjálfstæðisflokkur og M-listi samfélagsins halda sínum velli og tveir nýir listar, Óskalistinn og listi Velferðar, fá fulltrúa inn.

Á kjörskrá voru 2.345 og kjörsókn var 71,9%.

Atkvæðaskipting

D-listi Sjálfstæðisflokksins hlaut 20,3% atkvæða og 2 kjörna fulltrúa

S-listi Samfylkingar hlaut 18,6% atkvæða og 2 kjörna fulltrúa

B-listi Framsóknarflokksins hlaut 18,1% atkvæða og 2 kjörna fulltrúa

M-listi Samfélagsins hlaut 15,3% atkvæða og 1 kjörinn fulltrúa

Ó-listinn, Óskalistinn hlaut 13,9% atkvæða og 1 kjörinn fulltrúa

V-listi Velferðar hlaut 13,7% atkvæða og einn kjörinn fulltrúa

Kjörnir fulltrúar

Helena Eydís Ingólfsdóttir (D)

Kjartan Páll Þórarinsson (S)

Eysteinn Heiðar Kristjánsson (B)

Rúnar Traustason (M)

Ómar Gunnarsson (Ó)

Aldey Unnar Traustadóttir (V)

Þorsteinn Snævar Benediktsson (D)

Rebekka Ásgeirsdóttir (S)

Bylgja Steingrímsdóttir (B)

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!