Mynd: Akureyri.is

Kynntu stefnumálin á fundi fyrir innflytjendur í Hofi

Síðastliðinn fimmtudag stóð Akureyrarbær fyrir fundi fyrir innflytjendur með fulltrúum þeirra framboðslista sem taka þátt í sveitarstjórnarkosningum í næsta mánuði. Fundurinn fór fram í Hofi og var sérstaklega ætlaður innflytjendum með lögheimili á Akureyri.

Í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar segir að fundurinn hafi verið vel heppnaður. Fulltrúar listanna kynntu helstu stefnumál sín og að því loknu var opnað fyrir spurningar úr sal. Margar góðar spurningar bárust, meðal annars um menntamál, íslenskukennslu, úrræði fyrir jaðarsetta og móttöku flóttafólks. Fundurinn fór fram á ensku.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!