Í gær birtist tilkynning í Facebook-hóp Kisukots þar sem greint var frá því að loka þyrfti athvarfinu. Óvíst er hvort starfsemin verði endurvakin í framtíðinni.
„Vegna alvarlegra veikinda hjá mér þarf ég því miður að loka Kisukoti og ekki vitað hversu lengi eða hvort það verði alveg til frambúðar. Þetta eru mjög erfiðir tímar og einnig mjög erfitt að þurfa að loka. En ég verð að hugsa um mig og mína heilsu. Takk fyrir allt í gegnum árin,“ segir í færslunni, en Ragnheiður Gunnarsdóttir hefur rekið Kisukot á heimili sínu við Löngumýri undanfarin ár.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?




