Dagana 13.–17. apríl fór fram fimm daga sérhæft námskeið í þjónandi leiðsögn í SÍMEY. Námskeiðið var ætlað fagfólki sem hefur lokið grunn- og mentornámi í þjónandi leiðsögn og býr yfir að lágmarki fimm ára starfsreynslu í umönnun og stuðningi.
Leiðbeinendur á námskeiðinu komu frá COR Academy í Saskatchewan í Kanada, þeir Tim Jones, fræðslustjóri og Gentle Teaching Ambassador, og Michael Lavis, forstjóri Creative Options Regina. Námskeiðið var haldið í samstarfi við velferðarsvið Akureyrarbæjar, sem hefur um árabil átt í samstarfi við COR. Umsjón með námskeiðinu af hálfu Akureyrarbæjar hafði Kristinn Már Torfason.
COR er fræðslu- og þjálfunarmiðstöð sem býður upp á námskeið fyrir starfsfólk í meðal annars félags- og fötlunarþjónustu, skólum og umönnun. Markmið starfseminnar er að efla færni fagfólks í samskiptum og stuðningi, með sérstakri áherslu á viðkvæma hópa.
Markmið námskeiðsins í SÍMEY var að dýpka þekkingu þátttakenda á þjónandi leiðsögn og efla færni þeirra til að miðla hugmyndafræðinni áfram, meðal annars með kennslu og handleiðslu annarra starfsmanna, auk þess að þjálfa mentora.
Í lok námskeiðsins fengu þátttakendur skírteini sem staðfestir hæfni þeirra til að kenna hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar.










