Viktor Samúelsson setti nýtt Íslandsmet á Íslandsmeistaramótinu í réttstöðulyftu um helgina þegar hann lyfti 321kg. Hann bætti þar með sitt eigið Íslandsmet. Lyftan tryggði honum bæði sigur í -120kg flokki sem og í heildarstigakeppninni.
Viktor keppir í -120kg flokki þar sem hann vann sigur í sínum flokki sem og í heildarstigakeppninni. Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina. Lyftingadeild KA sá um umsjón mótsins og heppnaðist mótið ákaflega vel.
Lyftingadeild KA átti fjóra fulltrúa á mótinu en það voru þau Viktor Samúelsson, Drífa Ríkarðsdóttir, Harpa Rut Þórlaugsdóttir og Heiðrún Frímannsdóttir.
Hér að neðan má sjá umfjöllun um árangur þeirra af vef KA.is:
Viktor átti frábæran dag en hann hóf keppnina á að lyfta 280kg og því næst 310kg áður en kom að þriðju og síðustu lyftunni þar sem hann bætti Íslandsmetið. Hann virkaði einkar öruggur í sínum aðgerðum og til alls líklegur að bæta metið enn frekar á næstunni.
Drífa Ríkarðsdóttir sýndi og sannaði enn og aftur að hún er ein besta lyftingakona landsins en hún lyfti 180kg og vann þar með sigur í -63kg flokki auk þess sem hún vann sigur í heildarstigakeppninni. Ekki nóg með það að þá vann Drífa einnig í keppni með búnaði en þar lyfti hún 155kg en hún var hársbreidd frá því að lyfta meiri þyngd í báðum keppnum en gripið sveik hana og klárt að Drífa mun bæta enn frekar við afrekaskrána sína í náinni framtíð.
Harpa Rut Þórlaugsdóttir gerði gríðarlega vel í +84kg flokki en hún jafnaði Íslandsmetið í flokknum sem Hulda Sigurjónsdóttir setti nokkrum mínútum áður er hún lyfti 135kg. Harpa varð í öðru sæti á eftir Huldu og ljóst að það verður spennandi að fylgjast með framgöngu hennar á komandi mótum.
Að lokum gerði Heiðrún Frímannsdóttir afar vel í -84kg flokki en hún náði öllum sínum lyftum löglegum en hún byrjaði á að taka 95kg, því næst 105kg og kláraði svo 115kg með glæsibrag. Það var gríðarlega hörð keppni í flokknum sem Heiðrún keppti í en Elsa Pálsdóttir setti nýtt Íslandsmet er hún tryggði sér sigurinn.
„Frábær árangur hjá okkar öflugu keppendum en auk þess stóð KA uppi sem sigurvegari í liðakeppni kvennamegin. Við óskum þeim Viktori, Drífu, Hörpu og Heiðrúnu innilega til hamingju með árangurinn sem og lyftingadeild KA til hamingju með gríðarlega vel heppnað mót,“ segir í umfjöllun KA um mótið.






