Knattspyrnumaðurinn Aron Einar Gunnarsson er á leið heim í Þór samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Aron mun spila með liðinu seinni hluta tímabilsins í Bestu deild karla í fótbolta eftir að félagskiptaglugginn opnar 16. júlí næstkomandi.
Aron er uppalinn í Þór en hann lék síðast með liðinu sex leiki sumarið 2024. Hann hefur frá árinu 2019 spilað í Katar, fyrst með Al-Arabi og síðustu tvö ár með Al-Gharafa. Þar á undan hafði hann spilað á Englandi og í Wales í rúman áratug. Hann hóf atvinnumannaferilinn hjá AZ Alkmaar í Hollandi.
Aron er 37 ára og er næstleikjahæsti leikmaður í sögu karlalandsliðsins með 110 landsleiki. Þórsarar eru í botnbaráttu í Bestu deildinni en samkvæmt umfjöllun Fótbolta.net ætlar liðið að styrkja sig enn frekar þegar félagskiptaglugginn opnar.









