Háskólinn á Akureyri. Mynd: Auðunn Níelsson.

Vísindaskóli unga fólksins í HA

Vísindaskóli unga fólksins stendur yfir þessa viku og Áslaug Ásgeirsdóttir rektor tók á móti tæplega níutíu verðandi vísindafólki í morgun og ávarpaði.

Eftirspurn eftir skólaplássi hefur aldrei verið meiri og að þessu sinni var langur biðlisti eftir plássum. Skólinn er fyrir börn á aldrinum 11-13 ára og í ár eru talsvert fleiri drengir en stúlkur í nemendahópnum.

Fjöldi fólks kemur að kennslunni, meðal annars Stjörnu Sævar og Salvör Norðdal umboðsmaður barna. Akureyrarbær sendir kennara til liðs við skólann og það sama gerir Jafnréttissstofa og Íslenska gámaþjónustan. Sérfræðingar HA á sviði Norðurslóða mæta í fyrsta sinn.

Eins og fyrr er boðið upp á ný þemu sem bera yfirskriftirnar: Góður bær og betra líf, Kvikt og lifandi land í sól og myrkri, Þegar þröskuldur verður hindrun, Jafnrétti og mismunun, Ungmenni á norðurslóðum og barnasáttmálinn og loks Ævintýri í blómabreiðunni og hvar endar ruslið?

Formleg útskrift verður haldin við hátíðlega athöfn á föstudaginn.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!