Lögreglan á Akureyri heimsótti skemmtistaði og veitingastaði í bænum um helgina til þess að athuga hvort starfsemi væri alfarið í samræmi við lög. Flestir staðir voru með allt á hreinu en á einum stað var verið að selja fólki undir tvítugu áfengi og á öðrum var dyravarsla ekki í lagi. Greint er frá á vef RÚV í dag.
Þar segir að helgin hafi að öðru leyti verið með hefðbundnum hætti hjá lögreglunni. Lögreglan sinnti nokrum minniháttar útköllum tengdum ölvun og þá voru tveir teknir fyrir ölvunarakstur um helgina og fimm fyrir að keyra of hratt.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Aðfaranótt laugardags var lögreglu tilkynnt um að maður með hníf væri að taka í hurðarhúna. Þegar að var gáð reyndist sá ótti ekki eiga við rök að styðjast.









