Leggjast gegn því að starfsemi verði lögð af á Kristnesi

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar leggst gegn því að starfsemi Kristnesspítala verði lögð af á Kristnesi og telur að sú aðstaða og það umhverfi sem þar hafi verið byggt upp í gegnum árin sé einkar vel til endurhæfingar fallin. Þá telur sveitarstjórn að ekki verði í neinni fyrirsjáanlegri framtíð byggð upp álíka aðstaða annarstaðar sem hafi sömu kosti fram að færa.

Á fundi sveitastjórnar þann 30. apríl síðastliðinn var mál Kristnesspítala tekið fyrir. Í bókun sveitarstjórnar kemur fram að hún óttast að þegar liggi fyrir sú stefna að færa starfsemina frá Kristnesi og finna henni nýjan stað.

Sveitarstjórn leggur áherslu á að ef slík ákvörðun verði tekin, að leggja starfsemina alfarið af á Kristnesi, þá sé brýnt að slík ákvörðun liggi fyrir fljótt og örugglega svo unnt verði að hefja vinnu við að finna húsinu og svæðinu nýtt og farsælt hlutverk.

Óskir sveitarstjórnar eru:
Að ákvarðanir um framtíð Kristnesspítala liggi fyrir hið fyrsta.
Að endurhæfingarstarfsemi Sjúkrahússins á Akureyri verði áfram rekin á Kristnesi.
Að ríkið skýri sem fyrst framtíðarstöðu eignarhalds á íbúðarhúsnæði á svæðinu.
Að ef starfsemi Kristnessspítala verður flutt eða lögð niður hefjist tafarlaust vinna við að finna húsnæðinu ný not, innan eða utan eignarhalds ríkisins.
Að Eyjafjarðarsveit verði virkur þátttakandi í ákvörðunum um framhaldið.

Nánari umfjöllun má finna á vef Eyjafjarðarsveitar með því að smella hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!