Jón Ingi, Karen og Rúnar þjálfa hjá Þór

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur gengið frá samningum við Jón Inga Baldvinsson sem þjálfara meistaraflokks kvenna, Karen Lind Helgadóttur sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna og Rúnar Ólason sem þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu. Jafnframt skrifaði Emma Karólína Snæbjarnardóttir undir samning um áframhaldandi leik með félaginu.

„Jón Ingi hefur á undanförnum árum komið að uppbyggingu yngri floka deildarinnar af miklum krafti og fagmennsku. Undir hans stjórn getur liðið tekið mikilvæg skref fram á við og skapað sér sess meðal sterkustu liða landsins,“ segir í tilkynningu frá Körfuknattleiksdeild Þórs.

„Karen hefur á undanförnum árum verið mikilvægur þáttur í starfi félagsins og býr yfir góðri þekkingu á leikmannahópi, menningu félagsins og þeirri stefnu sem lögð hefur verið til grundvallar í uppbyggingu kvennastarfsins. Í hlutverki sínu mun Karen vinna náið með Jón Inga Baldvinssyni að þjálfun liðsins, þróun leikmanna og daglegu starfi meistaraflokksins.“

„Með ráðningu Rúnars stígur félagið mikilvægt skref í uppbyggingu starfsins. Rúnar mun leiða meistaraflokk karla auk þess að vera yfirþjálfari yngri leikmanna og styrkja tengsl milli yngri flokka og meistaraflokks.“

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!