Ljósmynd: Pollamot.is

Rúmlega 600 leikmenn skráðir á Pollamótið

Pollamót Þórs og Samskipa fer fram á Þórssvæðinu dagana 3. og 4. júlí og er skráning í fullum gangi. Þegar hafa rúmlega 600 keppendur skráð sig til leiks en skráningarfrestur er til 30. júní.

Dagskrá Pollamótsins 2026 verður svipuð og undanfarin ár, þar sem fótbolti er spilaður á daginn og skemmtun er á kvöldin.

Leikið er í fjórum aldursflokkum karla (28 ára og eldri upp í 50 ára og eldri) og þremur aldursflokkum kvenna (20 ára og eldri upp í 35 ára og eldri).

Á laugardagskvöldið verður ball í Boganum þar sem meðal annars Saint Pete, Skítamórall, Neon bandið mæta og Aron Can kemur fram á föstudeginum.

Skráning fer fram á vef mótsins. Fyrir þá sem vilja senda inn fyrirspurnir er bent á netfang mótsins: pollamot@thorsport.is.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!