„Ég er enn að lifa mínu lífi, það lítur bara öðruvísi út núna“

Akureyringurinn Óðinn Svan Óðinsson, formaður bæjarráðs Akureyrar og fyrrum fjölmiðlamaður, er gestur í nýjasta þætti hlaðvarpsins Lífið á meðan í umsjón Birnu Kristínar Hrafnsdóttur.

Lífið á meðan er hlaðvarp þar sem rætt er við aðstandendur krabbameinssjúklinga. Í október á síðasta ári greindist Heiðdís Rósa, eiginkona Óðins, með illkynja heilaæxli og í þættinum ræða Óðinn og Birna hvernig alvarleg veikindi hafa áhrif á fjölskylduna. Hvernig börnin verða hluti af ferðalagi sem þau kusu sér ekki og hvað hjálpar þegar maður stendur frammi fyrir óvissu, og hvað hjálpar alls ekki.

Sjá einnig: „Áfall sem ég hélt að kæmi aldrei fyrir mig eða mitt fólk“

„Það sem sat mest í mér eftir samtalið var jákvæðnin, sú tegund af von sem velur að halda áfram þrátt fyrir að vita ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér,“ skrifar Birna um þáttinn sem má hlusta á í spilaranum hér að neðan.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!