Íslandsmeistaramót aldursflokka (AMÍ) 2026 fór fram í Reykjanesbæ dagana 19.–21. júní þar sem Sundfélagið Óðinn sendi 28 keppendur til leiks. Sundfélagið Óðinn hafnaði í 5. sæti í liðakeppninni og hlaut jafnframt hinn eftirsótta titil „Prúðasta lið mótsins.“
Jón Ingi Einarsson frá Sundfélaginu Óðni var stigahæsti sundmaður mótsins í flokki 14–15 ára drengja. Hann sigraði í öllum sínum fimm greinum og varð Íslandsmeistari í 100 m bringusundi, 100 m skriðsundi, 200 m skriðsundi, 200 m fjórsundi og 400 m fjórsundi.
Íslandsmeistarar aldursflokka frá Sundfélaginu Óðni:
Jón Ingi Einarsson – 100 m bringusund, 100 m skriðsund, 200 m skriðsund, 200 m fjórsund og 400 m fjórsund
Björn Elvar Austfjörð – 200 m bringusund
Þór Bjarnar Kristjánsson – 50 m bringusund
Silfurverðlaun:
Björn Elvar Austfjörð – 100 m bringusund
Bronsverðlaun:
Björn Elvar Austfjörð – 800 m skriðsund
Stella Hansen – 50 m flugsund, 50 m skriðsund
Ösp Óladóttir – 100 m bringusund, 100 m fjórsund
Sunna Berglind Steinarsdóttir – 100 m baksund
Hrafney Eiríksdóttir – 200 m baksund
Þór Bjarnar Kristjánsson – 100 m bringusund, 50 m flugsund
„Mikill meirihluti keppenda Sundfélagsins Óðins bættu árangur sinn á mótinu og var stemningin í hópnum til fyrirmyndar. Óðinn óskar sundmönnum til hamingju með glæsilegan árangur og þakkar þjálfurum, fararstjórum, foreldrum og öllum þeim sem komu að mótinu fyrir þeirra framlag,“ segir á vef Óðins.










