Pálína sýnir í Mjólkurbúðinni

Pálína Guðmundsdóttir

Mjólkurbúðin, Kaupvangsstræti í Listagilinu Akureyri

26.06 – 05.07.2026

Sýningin opnar föstudaginn 26. júní kl 17-19. Opið daglega frá kl. 14-17

Toppar

 Uppistaða málverkanna, á sýningunni Toppar, eru fjallatindar og oft samruni himinsins og hafsins. Verkin eru flest máluð 2026. Orðið toppar er þar oftast notað frekar en tindar, þar sem tindar vísar meira eingöngu í jafðfræði en toppar nær yfir mun víðara svið sem ekki er síður mikilvægt.

 Fjallatindar geta verið tákn einhvers fjarlægs sem erfitt er að nálgast og klífa, og jafnvel huglæg birtingamynd erfiðra verkefna. Þeir geta jafnframt verið andstaða þess og tjáð velgengni og það að vera á toppnum eða á tindi frama eða velgengni.

Fjallatindar eru þeir punktar jarðarinnar sem lengst skaga uppúr jarðskorpunni og virðast því næst himninum, umvafðir dularfullum ævintýrabjarma. Þeir minna hugsanlega á það sem er handan jarðlífsins og hugrenningar um að öllu er afmörkuð stund, og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma, eins og við erum reglulega minnt á. Flest er breytingum háð, s.s. veðrið og vindarnir sem sverfa og eyða fjallatindunum, en það sem ekki breytist er blár litur himinsins og hafsins. Pólstjarnan er líka eini fasti punktur sæfaranna, sem byggja sína vegvísa á stöðu þessa einstaka ljósgjafa himinsins á ferðum sínum um hafið.

Merkingarfræðileg þýðing hæsta hluta láréttrar línu er toppurinn sem getur vísað til efsta hluta fjalla, en líka í samhengi við andstöðuna dalina lægsta hlutann, það er þekkt frá margs konar línuritum sem tengjast t.d. ölduhæð, efnahag, tónhæð, hjartslætti, o.fl. Toppar koma víða fyrir í tungumálinu t.d. þegar talað er um topp ísjakans, topp tilverunnar, að toppa sig þar heyrist síður orðið tindur.

 Á sýningunni eru toppar/tindar uppistaðan ásamt himinblámanum og hafinu. Einnig er flæði og þykkt litanna og þeirra samsetningar, áferð og pensilskrift. Þeir eru oft hreinir og lítið blandaðir, þannig næst fram viss rýmisvirkni og hámarks kraftur, tilfinning og tjáning.

Pálína Guðmundsdóttir ( Fullt nafn Guðrún Pálína) er fædd og starfandi á Akureyri 

Hún nam myndlist og málvísindi í Gautaborg og hélt svo til frekara náms í myndlist 1982 til AKI í Enschede í Hollandi og framhaldsnám í Jan van Eyck Akademie  í Maastricht (1987-89).  Hefur verið starfandi myndlistamaður síðan1989 og sýnt reglulega síðan. Pálína var bæjarlistamaður Akureyrar 2013. Í lok árs 2022 gaf hún út bókina Andlit/Faces sem fæst í öllum safnabúðum listasafna landsins og í     Eymundsson á Akureyri. 

Heimasíðan er palina.is og Instagram síðan palina.gudmundsdottir.art

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!