46 tonn af rusli hreinsað úr fráveitu árið 2025

Á árinu 2025 voru 46 tonn af rusli hreinsuð úr fráveituvatni í hreinsistöð fráveitu á Akureyri. Hreinsistöðin var tekin í notkun árið 2020 og þar eru allir fastir hlutir sem eru stærri en þrír millimetrar fjarlægðir úr fráveituvatninu. Ruslinu er síðan safnað saman og það urðað. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

„Stór hluti þess sem endar í hreinsistöðinni á ekki heima í klósettinu. Blautþurrkur, klútar og fita valda sérstaklega miklum vandamálum þar sem slíkt getur stíflað lagnir og dælur í fráveitukerfinu. Það leiðir til aukins viðhalds og kostnaðar. Þótt sumar blautþurrkur séu merktar „flushable“ þýðir það ekki að þær eigi að fara í fráveitukerfið. Þær brotna ekki niður á sama hátt og klósettpappír og geta valdið miklu tjóni,“ segir í tilkynningu á vef bæjarins.

Norðurorka hvetur íbúa til að setja blautþurrkur, klúta og annan sambærilegan úrgang í ruslið.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!