Stjórn Samherja hf. ásamt forstjóra. Frá vinstri: Kristján Vilhelmsson, Eva Bryndís Helgadóttir, Jón Sigurðsson, formaður stjórnar, Dagný Linda Kristjánsdóttir, Óskar Magnússon og Baldvin Þorsteinsson, forstjóri. Mynd: Samherji.is

Hagnaður Samherja nam tæplega 8,5 milljörðum króna

Rekstur Samherja hf. gekk vel á árinu 2025 samkvæmt tilkynningu á vef Samherja. Tekjur samstæðunnar námu 78,4 milljörðum króna og hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 10,7 milljörðum króna og jókst um 1,8 milljarða milli ára. 

Hagnaður af rekstri (EBIT) var 7,3 milljarðar króna samanborið við 6,1 milljarðs króna hagnað árið áður og jókst því um tæplega 19% milli ára. Aukinn hagnaður skýrist öðru fremur af háu afurðaverði á botnfiskmörkuðum og traustum rekstri. Hagnaður eftir skatta nam tæplega 8,5 milljörðum króna. 

Eignir í lok árs námu 131,3 milljörðum króna og eigið fé nam 99,6 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall í árslok var 75,8%.

„Ársuppgjör Samherja sýnir að grunnrekstur félagsins er traustur og fjárhagur þess er sterkur. Það gerir Samherja kleift að horfa til frekari fjárfestinga, einkum þeirra sem miða að því að auka samkeppnishæfni félagsins og þar með íslensks sjávarútvegs,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja hf.

Á vef Samherja má finna nánari umfjöllun um árið 2025 hjá Samherja.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!