Göngugatan lokuð fyrir bílaumferð í sumar

Göngugatan á Akureyri verður lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja frá og með 1. maí. Opið verður fyrir ökutæki með aðföng frá klukkan 7 til 10 alla daga. Aðgengi fyrir P-merkta bíla og ökutæki viðbragðsaðila verður ávallt tryggt. Opnað verður aftur fyrir umferð þann 30. september. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Lokunin er með sama sniðið og árið 2025 og er í samræmi við samþykkt Akureyrarbæjar um tímabundnar lokanir gatna fyrir umferð vélknúinna ökutækja sem er að finna á akureyri.is.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!