Fiskistofustjóri leitar að nýju húsnæði fyrir Stofnun atvinnuveganna

Elín Björg Ragnarsdóttir fiskistofustjóri leitar að nýju húsnæði fyrir Stofnun atvinnuveganna sem verður opnuð næstu áramót. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Þar segir að starfsemi ýmissa ríkisstofnana, líkt og Fiskistofu, hafi farið fram á Borgum á Akureyri og þar hafi ítrekað fundist mygla síðan árið 2024.

Í umfjöllun RÚV kemur einnig fram að Fiskistofa hafi verið lögð niður í kjölfar nýs lagafrumvarps um Stofnun atvinnuveganna. Frumvarpið kveður á um að Fiskistofa, Matvælastofnun og Verðlagsstofa skiptaverðs verði sameinaðar í eina stofnun.

Nánari umfjöllun um málið má finna á vef RÚV með því að smella hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!