Kvenfélag Svalbarðsstrandar varð 125 ára þann 17. mars sl. og býður af því tilefni upp á 17 sortir og drykki með niðri við Vitann á Svalbarðseyri sunnudaginn 28. júní frá klukkan 13-16.
SPJALL-BEKKURINN verður vígður en hugmyndin að honum er frá vitundarvakningu um einmanaleikann sem Kvenfélagasamband Íslands stóð fyrir í haust.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Skemmtileg afþreying verður í boði fyrir börn og fullorðna og gestir eru hvattir til að taka með sér teppi og/eða tjaldstóla.










