Hundurinn Dýri varð upphafið að fyrirtækinu Baxter

Baxter.is er netverslun sem býður upp á hágæða hundanammi úr hreinu hráefni án allra aukaefna. 

Orri og Lotta eru eigendur Baxter og búa á Akureyri. Þau ræddu við Kaffið.is um fyrirtækið. 

„Baxter.is byrjar í rauninni út af Dýra, hundinum okkar Lottu, en hann eins og margir aðrir Labrador hundar fór snemma að sýna allskonar ofnæmisviðbrögð. Hann virtist bregðast illa við nánast öllu hundanammi sem við prófuðum hér heima og okkur fannst erfitt að finna nammi sem var ekki með einhverjum aukaefnum, fylliefnum eða öðrum óþarfa innihaldsefnum sem fóru illa í hann,“ segir Orri.

Eftir að hafa prófað allskonar vörur og pantað frá erlendum vefsíðum rákust þau á vörurnar frá Barf Aps í Danmörku. 

„Þar fundum við til dæmis nammi og nag úr hestakjöti án allra aukaefna sem Dýri þoldi mjög vel. Eftir að hafa pantað nokkrum sinnum fyrir okkur sjálf ákváðum við svo að slá til og fá umboð fyrir vörurnar á Íslandi.“

Hreint og aukaefnalaust hundafóður mikilvægt

Það sem gerir Baxter sérstakt er fyrst og fremst áherslan á hreinleika. Barf Aps hefur frá árinu 1998 lagt áherslu á að nota eingöngu hrein hráefni í vörurnar sínar og engin rotvarnarefni, bragðefni eða önnur óþarfa aukaefni.

„Margir hundar fá nammi daglega, hvort sem það er í þjálfun, sem verðlaun, í leiki, í göngutúrum eða bara sem smá dekur. Þá skiptir máli hvað er í namminu. Við leggjum áherslu á vörur úr alvöru hráefni, með háu hlutfalli af náttúrulegu próteini og án þess að bæta við efnum sem hundurinn hefur ekkert með að gera.“

Baxter varð til sem lausn við vandamáli sem margir hundaeigendur glíma við.

„Baxter er líka svolítið persónulegt verkefni þar sem þetta byrjaði ekki bara sem „enn ein netverslunin með hundavörur,“ heldur út frá vandamáli sem við lentum sjálf í með okkar eigin hund. Þess vegna hugsum við mikið út frá hundaeigendum sem eru kannski í sömu stöðu og við vorum í.“

Vörur sérvaldar fyrir íslenskan markað

Vörurnar hjá Baxter eru allar búnar til úr evrópskum, náttúrulegum hráefnum frá frjálsum dýrum, sem veitir fyrsta flokks gæði.

„Við veljum inn vörur sem passa við það sem okkur finnst vanta á íslenska markaðinn, bæði klassískt hundanammi og líka úrval af nagi og próteingjöfum sem eru kannski ekki jafn algengir hér heima, eins og hest, kanínu, geit, villibráð og fleira. Það getur skipt miklu máli fyrir hunda sem þola illa algengari próteingjafa eins og kjúkling eða naut.“

Vörurnar eru unnar þannig að hráefnið helst eins náttúrulegt og kostur er á. 

„Þá er notað loftþurrkun eða frostþurrkun, sem hjálpar til við að varðveita bragð, lykt og gæði hráefnisins án þess að þurfa að nota óþarfa rotvarnarefni eða bragðefni. Þetta er einmitt stór hluti af því sem okkur líkar við vörurnar. Hundurinn fær alvöru hráefni, ekki nammi sem er búið að móta, lita og bragðbæta til að líta vel út fyrir eigandann. Hundinum er alveg sama þó nammið sé ekki í fallegum litum — hann vill bara eitthvað sem lyktar og bragðast vel.“

Góða undirtektir frá hundaeigendum um allt land

„Margir viðskiptavinir koma til okkar vegna þess að hundurinn þeirra er með ofnæmi, viðkvæma meltingu eða þolir illa hefðbundið hundanammi. Svo eru líka margir sem eru einfaldlega farnir að lesa meira aftan á umbúðirnar og vilja passa betur upp á það hvað þeir eru að gefa hundinum sínum.“

Vinsælustu vörurnar eru kanínueyru, hestahásinar, kameldýraskinn og annað nag. 

„En frostþurrkuðu nautatyppin eru okkar mest selda vara, enda frábært og endingargott nag sem flestir hundar elska. Patéin hafa líka verið vinsæl enda er hægt að nota þau á rosalega fjölbreyttan hátt, eins og t.d. nammibita, fyllingu í nagdót, sleikimottur og margt fleira.“ 

Hundanammið er fyrir allar stærðir og gerðir hunda.

„Við erum með nammi bitana í þremur stærðum og svo er nagið í öllum stærðum og gerðum, bæði lítið og frekar mjúkt nagnammi sem hentar fyrir þessa minnstu en líka stærra og endingarbetra nag fyrir stærri hunda eða hunda sem þurfa meiri örvun.“

Mikilvægt er að velja vörur eftir stærð hunds, aldri og þörfum. Þess vegna leggur Baxter áherslu á að hafa fjölbreytt úrval og aðstoða fólk við að finna eitthvað sem passar þeirra hundi. 

„Við mælum líka alltaf með að hundar séu undir eftirliti þegar þeir fá nag, sérstaklega ef þeir eru mjög ákafir eða vanir að gleypa hluti.“

Baxter vörurnar fást hjá Dýrey á Akureyri, Betri hundum í Hafnarfirði og hjá Dýralæknastofu Helgu á Ísafirði. „Við erum líka alltaf opin fyrir því að bæta við áhugasömum söluaðilum í hópinn,“ segir Orri.

Einnig er hægt að panta vörurnar beint í netversluninni Baxter.is. Pantanir eru sendar um allt land og Orri og Lotta leggja áherslu á að afgreiða þær eins fljótt og auðið er. 

„Svo er alltaf frí heimsending í boði innan Akureyrar af öllum pöntunum,“ bæta þau við.

Sama hvort hundurinn þinn sé með ofnæmi, á hráfæði, sérvitringur eða ekkert að eftirtöldu, þá ættu allir hundar að finna eitthvað sem hentar þeim hjá Baxter. 

„Okkur langar fyrst og fremst að vörurnar hjá Baxter geti hjálpað hundaeigendum sem lenda í sama brasi og við lentum í með Dýra og er gaman að sjá hversu mörgum ofnæmis hundum þær hafa hjálpað. Fólki er svo alltaf velkomið að hafa samband ef það er óvisst hvað gæti hentað hundinum sínum. Við reynum eftir bestu getu að leiðbeina út frá því sem við höfum lært af eigin reynslu og af viðskiptavinum okkar.“

Baxter er á Facebook, Instagram og TikTok.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!