Ég spurði vinkonu mína um daginn hvað henni langaði í afmælisgjöf og hún sagði að eitt, stórt knús væri meira en nóg. Mér fannst það hins vegar ekki vera ásættanlegt svar og var strax byrjuð að plana í huganum mögulegar gjafir fyrir hana. Knús, eða faðmlag, er eitthvað svo sjálfsagt og við pælum líklega ekki mikið hvað er á bakvið það. Stuttu seinna var ég hins vegar í göngutúr með mömmu minni sem deildi með mér fróðleik sem hún hafði öðlast á fræðslu í vinnunni sinni. Þessi fróðleikur varðaði þá einmitt faðmlög og vakti áhuga minn að lesa mér frekara til um þetta viðfangsefni.
Við erum sífellt að pæla í heilbrigði og leitumst við að fylgja hinum og þessum ráðum til að efla heilsuna okkar. Hér bætist við enn eitt ráðið en faðmlög hafa víst mikinn heilsufarslegan ávinning. Til að byrja með draga þau úr streitu sem er náttúrulega mjög jákvætt í því streitusamfélagi sem við lifum í. Þegar við föðmust losar líkaminn nefnilega hormónið oxýtósín en það stuðlar að tengslamyndun og dregur líka úr streitu. Við faðmlag getur líka orðið losun á hormónunum dópamín og serótónín en hlutverk þeirra er að bæta skapið og virkja hamingjutilfinningu. Þar af leiðandi má segja að faðmlög hafa jákvæð áhrif á tilfinningalega vellíðan þar sem einstaklingar upplifa minni kvíða og meira af þægilegum tilfinningum eins og ró, gleði og sátt. Það kemur kannski ekki á óvart að knús styrkir sambönd, eykur nánd og dregur úr einmanaleika þar sem faðmlög eru ákveðin leið til að tjá ást og væntumþykju. Þetta á þá við um allar gerðir sambanda, hvort sem það eru milli maka, vina eða fjölskyldu. Við erum kannski sífellt að senda tjákn í gegnum samfélagsmiðla en það snertir ekki við okkur eins og raunverulegt knús gerir.
Faðmlög hafa sannarlega mikil áhrif á andlega og félagslega heilsu en hins vegar má ekki gleyma því að þau eru sömuleiðis áhrifaþáttur þegar kemur að líkamlegu heilsunni. Rannsóknir hafa sýnt að faðmlög geta bætt hjarta- og æðakerfið og ónæmiskerfið sem veldur því að líkur á ýmsum sjúkdómum minnkar. Jafnframt getur gott knús verið hjálplegt fyrir einstaklinga sem glíma við mikla verki eða óþægindi og þar með bætt líkamlega líðan.
Eftir að hafa lesið mér aðeins til um áhrif faðmlaga á velferð okkar þá hugsa ég að gott knús sé virkilega verðmætt, enda gaf ég vinkonu minni stórt knús í tilefni af afmæli hennar. Auðvitað er nauðsynlegt að taka öllum upplýsingum af netinu með fyrirvara en mín skoðun er að knús getur að minnsta kosti ekki verið skaðlegt. Ég virði það að allir eru ekki sammála mér og við eigum ekki að þvinga fólk þegar kemur að knúsi enda er alltaf best að spyrja fyrst.
Sometimes a hug is worth more than a thousand words





