Vikar Mar

Vikar Mar opnar sýninguna Ring or Circle / Hringur eða Hringur á Leyni

Vikar Mar opnar sýninguna Ring or Circle / Hringur eða Hringur í dag, fimmtudaginn 25. júní klukkan 20:00 á LEYNI, Hafnarstræti 95, Akureyri

Í sýningunni Ring or Circle / Hringur eða Hringur heldur Vikar Mar áfram rannsókn sinni á endurtekningu, formi og skynjun. Titill sýningarinnar vísar til einfalds forms sem birtist aftur og aftur í verkunum, en um leið til þeirrar tvíræðni sem felst í því hvernig við skilgreinum og skiljum það sem við sjáum.
Verkin byggja á ferli þar sem endurtekning, efniskennd og innsæi gegna lykilhlutverki. Hringurinn verður bæði tákn og athöfn; merki um hreyfingu, tíma og stöðuga umbreytingu. Með sterkum litaflötum, lífrænum formum og marglaga yfirborði skapast rými þar sem skipulag og óreiða mætast.

Vikar Mar (f. 1999) er sjálflærður myndlistarmaður og sauðfjárbóndi búsettur á Hjalteyri við Eyjafjörð. Frá árinu 2015 hefur hann starfrækt vinnustofu í Verksmiðjunni á Hjalteyri og unnið markvisst að þróun eigin myndmáls. Verk hans hafa verið sýnd víða um land á einka- og samsýningum og eru meðal annars í eigu Menningarmiðstöðvar Þingeyinga.

Öll eru velkomin á opnun sýningarinnar.
Léttar veitingar í boði

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!