Ivanka Trump

Ivanka Trump lenti á Akureyrarflugvelli í gær

Ivanka Trump er dóttir Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Hún er stödd á Norðurlandi um þessar mundir með eiginmanni sínum Jared Kushnerum. Ægir Þór Eysteinsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, staðfesti þetta og MBL.is greindi frá.

Þar segir einnig að samkvæmt umfjöllun Ríkisútvarpsins hafi hjónin lent á Akureyrarflugvelli á fimmtudag og haldið þaðan í Skagafjörð:

Þar dvelja þau að sögn á Deplum í Fljótum á Tröllaskaga. Deplar njóta vinsælda meðal erlendra gesta sem hafa rúm fjárráð og sækjast eftir afskekktri dvöl og upplifun í íslenskri náttúru.

Samkvæmt umfjöllun MBL.is er talið er að hjónin séu hér í einkaerindum. Kushner hefur að undanförnu setið í bandarískri sendinefnd sem hefur átt í samningaviðræðum við Íran ásamt J.D. Vance varaforseta Bandaríkjanna og Steve Witkoff, sérstökum erindreka Donalds Trumps forseta.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!