Ljósmynd: Fjöruböðin

Fjörukaffi opnað á Hauganesi

Fjöruböðin á Hauganesi opnuðu í gær nýtt kaffihús með útsýni yfir Eyjafjörðinn. Á Fjörukaffi verður meðal annars boðið upp á kaffi, smurbrauð, bakkelsi og kalda drykki og opnunartími verður alla daga frá 12:00-20:00.

Fjöruböðin hafa verið í stöðugri uppbyggingu síðustu ár og skv. vefsíðu Fjörubaðanna er kaffihúsið einungis byrjunin. Áform eru um að árið 2029 verði bróðurpartur framkvæmda við stækkun á böðunum, nýju hóteli og sumarhúsabyggð lokið.

framtíðaráform fyrir Fjöruböðin
Framtíðaráform fyrir Fjöruböðin

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!